Við hreint út sagt elskum góð húsráð er snúa að þrifum á póstulínsskálinni inn á baðherbergi. Því klósettið er eflaust eitt mest notaða „heimilistækið“ af öllum í fjölskyldunni. Hér bjóðum við upp á sjóðheita uppskrift af salernisbombu sem svínvirkar við þrifin.
Salernisbomban sem virkar við þrifin
- 2 bollar matarsódi
- ½ bolli sítrónusýra
- 25 dropar ilmolíudropar
- Bætið sódavatni smátt saman við, en blandan ætti að vera eins og blautur sandur. Setjið blönduna í klakamót og látið þorna yfir nótt.
- Geymið „töflurnar“ í lofttæmdu íláti og notið eftir þörfum til að þrífa klósettið.
- Setjið eina töflu í klósettskálina og látið freyða. Skrúbbið skálina og sturtið niður.