Nýtt skurðarbretti frá Kay Bojesen

Nýtt skurðarbretti hannað af Kay Bojesen.
Nýtt skurðarbretti hannað af Kay Bojesen. Mbl.is/Kay Bojesen

Menageri, er nafn á splúnkunýju skurðarbretti hannað af Kay Bojesen – eða enn ein viðbótin af danskri hönnun inn í eldhúsið.

Það var í kringum 1940 sem að Kay Bojesen hannaði fallega vörulínu undir nafninu Menageri, en serían inniheldur skálar, hnífapör, piparkvörn, eggjabikar og margt fleira. Allt unnið og framleitt úr viði þar sem naumhyggjan mætir mjúkum línum. Eða nákvæmlega allt það sem einkennir hönnun Kay Bojesen. Og nú bætist við skurðarbretti úr FSC-vottaðri eik, því fullkomið til að skera og saxa hin ýmsu matvæli. Fallegar línur einkenna brettið, þá ekki einungis í skrautlegu munstri heldur einnig í rúnnuðum brúnum brettisins.

Mbl.is/Kay Bojesen
Mbl.is/Kay Bojesen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert