Þegar þú vilt fá eldhúsvaskinn tandurhreinan með einfaldri aðferð og hráefnum úr skúffunni – þá er þetta aðferðin. Því ekkert jafnast á við tandurhreinan vask og hvað þá hreint eldhús ef því er að skipta.
Tandurhreinn vaskur á augabragði
- Byrjið á því að sprauta uppþvottalögi yfir allan vaskinn.
- Stráið því næst natron yfir.
- Nuddið vaskinn með örtrefjaklút og makið þannig blöndunni vel yfir allt svæðið.
- Skolið og þurrkið yfir með þurrum klút.
- Eins má notast við sömublöndu á niðurfallið til að losa um óhreinindin þar.