Borðstofuljós geta sett stóran svip á rýmið og því er gaman að velta fyrir sér hverslags ljós manni langar til að hafa hangandi yfir borðinu. Ljósakrónur finnast í ýmsum útfærslum og geta skapað persónulega stemningu sem og dramatísk áhrif í rýminu. Ljós með mörgum örmum og karakter eru fullkomin í stærri rými, á meðan ljósakróna með færri díteila hentar betur þar sem plássið er minna. Hér fyrir neðan eru nokkrar fallegar ljósakrónur sem veita innblástur ef einhver er að leita eftir slíku.