Það er fátt skemmtilegra en þegar María Gomez á Paz.is fer í framkvæmdir og finnur upp eitthvað splunkunýtt. Eins og þennan rétt hér.
Við erum að tala um eitt farsælasta hjónaband síðari ára: eðlu og burrito og útkoman er stórbrotin.
Eðlu Burrito
- 500 gr hakk
- 1 krukka Mission chunky salsasósa
- 1 dl maísbaunir
- 1 pakki Mission vefjur original eða að eigin vali
- Philadelphia rjómaostur
- rifinn mozzarella ostur
- salt og pipar (má líka krydda aukalega með paprikudufti, Cumin og timian þá 1 tsk af hvoru)
Aðferð
- Steikjið hakkið á pönnu og kryddið
- Bætið svo salsasósunni og maísbaunum út á, hitið ögn saman og slökkvið undir
- Smyrjið svo rjómaostinum yfir alla vefjuna og dreifið rifnum osti yfir
- Setjið svo vel af hakkinu á miðja vefjuna og rúllið upp
- Hitið svo vefjuna á pönnu þar til mozzarella osturinn er bráðnaður og njótið