Linda Ben galdrar hér fram bollur sem hún segir að séu skemmtilega öðruvísi og fullkomin fyrir þá sem elska snickers, hnetusmjör og karamellu.
Karamelluglassúr toppur
Aðferð:
Útbúið vatnsdeigsbollur eins og gefið er upp i uppskriftinni hér.
Setjið 100 ml rjóma í pott ásamt hnetusmjöri og hitið mjög vel, en ekki láta sjóða. Brjótið súkkulaðið í skál og hellið hnetusmjörsrjómanum yfir súkkulaðið, hrærið þar til súkkulaðið hefur samlagast rjómanum.
Útbúið karamelluglassúrinn með því að setja smjör, púðursykur og mjólk í pott og hita þar til blandan byrjar að sjóða, takið þá af hitanum og blandið flórsykri út í þar til áferðin verður þykk fljótandi.
Setjið restina af rjómanum (400 ml) í skál og þeytið létt. Þegar rjóminn er aðeins byrjaður að þykkna, hellið þá hnetusmjörs-súkkulaðiblöndunni út í mjórri bunu á meðan verið er að þeyta. Þeytið þar til rjóminn er orðin stífur.
Skerið bollurnar í helminga og fyllið með rjómanum, lokið bollunum, hellið karamelluglassúr yfir og dreifið nokkrum salthnetum yfir.