Spennandi, bragóður, exótískur og auðveldur! Þessi orð lýsa þessum dásamlega kjúklingarétti fullkomlega.
Uppskriftin kemur úr smiðju Berglindar Guðmunds á GRGS.is og er algjör snilld eins og hennar er von og vísa.
Allt í einu fati kjúklingaréttur frá miðausturlöndunum
Fyrir 3-4
- 1 kg kjúklingalæri
- 500 g gulrætur, skornar langsum í bita
- 1/2 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
- 2 msk. za'atar*
- 1 sítróna, börkur og safi
- sjávarsalt og svartur pipar
- 2 tsk. hunang
- ólífuolía
- 60 g fetaostur
- 40 g pistasíuhnetur (eða furuhnetur)
- 1 avacado
- klettasalat
Aðferð:
- Látið kjúklingalæri, gulrætur, lauk, za'atar, börk af sítrónu, salt og pipar, hunang og 4 msk af ólífuolíu saman í skál og blandið öllu vel saman. Þetta má gera 6-8 klst áður en kjúklingurinn er eldaður.
- Hitið olíu á pönnu og brúnið kjúklinginn og grænmetið í skömmtum (ath ekki ofhlaða á pönnuna)
- Látið í 160°C heitan ofn í 10-15 mínútur eða þar til grænmetið er farið að mýkjast og kjúklingurinn er eldaður í gegn.
- Takið kjúklinginn úr ofninum og kreistið sítrónusafa úr hálfri sítrónu yfir kjúklinginn.
- Blandið fetaosti og pistasíuhnetum saman í skál ásamt 2 tsk af ólífuolíu. Hellið yfir kjúklingaréttinn.
- Látið að lokum sneiðar af avacado yfir ásamt klettasalati.
- Za’atar er krydd frá miðausturlöndunum sem fæst í sumum verslunum til dæmi frá Kryddhúsinu. En það er einnig auðvelt að gera það sjáflur.
Za’atar
- 1 msk. timían
- 1 msk. cumin (ekki kúmen)
- 1 msk. kóríander
- 1 msk. ristuð sesamfræ
- 1 msk. sumac (ég sleppi stundum)
- 1/2 tsk. sjávarsalt
- 1/4 tsk. chilíflögur
Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir