Þessi uppskrift er æðisleg í helgarbrönsinn! Ostafrittata með fjórum mismunandi ostum, borin fram með fersku salati í boði Hildar Rutar.
Yndisaukandi ostafrittata
Uppskrift fyrir 4-6
- 6 egg
- 250 ml rjómi
- 1 dl rifinn parmesan ostur
- Salt og pipar
- Cayenne pipar
- 1 tsk olía (olívuolía eða avocado olía)
- 20 gr smjör
- 2 dl rifinn cheddar ostur
- 1 dl kotasæla
- 1 dl rifinn mozzarella ostur
- 1 msk steinselja
Aðferð:
- Hrærið egg, rjóma, parmesan, cayenne pipar, salt og pipar saman.
- Hitið olíu og smjör á 20 – 25 cm pönnu sem má fara inn í ofn og stillið á vægan hita. Bræðið smjör og olíu á pönnunni.
- Hellið síðan eggjablöndunni á pönnuna og látið malla í 5-7 mínútur.
- Því næst dreifið cheddar osti, kotasælu og mozzarella yfir blönduna og eldið í 12 mínútur.
- Dreifið steinseljunni yfir og bakið inn í ofni í 10 mínútur við 180°C. Toppið með rifnum parmesan osti. Berið fram með fersku salati.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir