Gómsætt kjúklingasalat með sætum kartöflum

Ómótstæðilegt kjúklingasalat með sætum kartöflum og hnetum.
Ómótstæðilegt kjúklingasalat með sætum kartöflum og hnetum. mbl.is/Helga Magga

Við elskum góð kjúklingasalöt og þetta hér er einfalt og gott sem allir í fjölskyldunni munu elska. Uppskriftin kemur frá Helgu Möggu sem segist yfirleitt nota það grænmeti sem til er í ísskápnum, en að wasabi hneturnar og sætu kartöflurnar séu ómissandi að hafa.

Kjúklingasalat með sætum kartöflum

Innihald fyrir einn:

  • 200 g sæt kartafla (eða minna)
  • 1 tsk. olía á kartöfluna (má sleppa)
  • Salat
  • Hálf paprika
  • Gúrka
  • 130 g kjúklingur
  • 30 g wasabi hnetur
  • 30 g sweet chilli sósa

Aðferð:

  1. Byrjaðu á því að skera sætu kartöfluna í bita og hita í ofni við 200gráður í 30 mínútur. Ég setti smá olíu á kartöflurnar en það er hægt að sleppa því, svo kryddaði ég þær með salti og pipar. Það er gott að láta kartöflurnar kólna aðeins áður en þær eru settar út á salatið.
  2. Ég var með tilbúnar eldaðar kjúklingalundir svo það tók mig aðeins um 5 mínútur að skera allt niður í salatið eftir að kartöflurnar voru tilbúnar úr ofninum.
  3. Ég notaði sweet chilli sósu á salatið sem ég blanda ca. 50/50 saman við volgt vatn. Ástæðan er sú að þessi sósa er bæði mjög kolvetnarík og stútfull af sykri, en með því að drýgja hana með vatni ertu strax kominn með aðeins skárri kost en bragðið helst það sama. Svo má auðvitað nota hitaeiningalausar súrsætar sósur sem fást í næstu verslun.
  4. Það er einfalt að stjórna kolvetnamagninu með því að minnka magnið af sætu kartöflunni eða wasabi hnetunum, svo má auka próteinið með því að setja meira magn af kjúklingi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert