Geggjuð ostakaka í boði Axels

Axel Þorsteinsson sælkerabakari með meiru.
Axel Þorsteinsson sælkerabakari með meiru. mbl.is/Mynd aðsend

Sælkerabakarinn og heimshornaflakkarinn, Axel Þorsteinsson, færir okkur þessa ómótstæðilegu ostaköku sem gengur undir nafninu San Sebastian. Hann segir kökuna vera einfalda í framreið og í miklu uppáhaldi.

San Sebastian ostakaka

  • 500 g rjómaostur (ekki smyrjanlegur)
  • 300 g sýrður rjómi 18%
  • 200 g mascarpone
  • 400 g rjómi
  • 3 tsk. mais sterkja
  • 1 tsk. kökuhveiti
  • 2 ½ bolli sykur
  • 4 stór egg (60 gr hvert)
  • 1 feit og djúsí vanillu stöng (gætir fengið góða í næsta bakaríi)
  • Áhöld: Skál, sleikja, vigt. Hringlaga form 26 x 6 cm.
  • Tips: Vanilla sem færst í matvöruverslun er vanalega ekkert frábær, þannig notið annað hvort tvær þannig, eða notið dropa í staðinn (3 tsk). Ég er mjög vandlátur á vanillu, en þetta er allt smekksatriði.

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200 gráður með blæstri.
  2. Takið kökuhringinn og létt fitið hann með smjöri eða spreyi. Settu smjörpappír í formið (þetta getur verið hvaða stærð sem þú vilt og það má vera botn á hringnum, en þarf ekki).
  3. Öll hráefni þurfa að vera við stofu hita. Mikilvægt er að hræra mjög rólega svo deigið fái ekki loft í sig. Hrærið með sleikju, ekki pískara.
  4. Settu rjómaost, mascarpone og sýrðan rjóma í skál, og blandið rjómanum varlega saman við svo deigið kekkist ekki.
  5. Skerið vanilluna í tvennt og skafið fræin úr - setjið í skálina. Reynið að skafa eins vel og hægt er.
  6. Blandið sykrinum saman við, sigtið svo þurrefnin í og blandið.
  7. Hellið deiginu í formið, bankið í borðið til að losa um eitthvað loft sem gæti verið í deiginu. Hvílið í 10-20 mínútur til að deigið losni við loftið.
  8. Bakið í 20-25 mín. Kakan mun vera soldið „wiggly“ en hún á að vera það. Hækkið hitann núna í 280-300 gráður (öskrandi heitt) - því hærra því betra.
  9. Bakið kökuna þangað til hún er orðin dökk brún (karamellusera toppinn vel).
  10. Takið kökuna út og kælið niður.
Ofboðslega góð ostakaka sem ber hið virðulega nafn „San Sebastian“.
Ofboðslega góð ostakaka sem ber hið virðulega nafn „San Sebastian“. Mbl.is/everylittlecrumb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert