Hér er á ferðinni pítsa sem sprengir alla skala! Bragðlaukarnir taka á flug og fjölskyldan mun elska þessa útgáfu af flatböku. Uppskriftin kemur úr smiðju Önnu Mörtu sem hefur fært okkur margar girnilegar uppskriftirnar hér á matarvefnum.
Pítsan sem sprengir alla skala
- 1 stk Liba-pítsabotn (fæst í frystideild stórmarkaða)
- 2 msk. döðlumauk ANNAMARTA
- 1 lúka af mozzarella
- 1 stk. eldaður andarleggur – taka af leggnum og tæta niður
- 1/2 rauðlaukur
- 1-2 lúkur af klettasalati
- 1-2 msk. granatepli – einnig hægt að nota frosin
- 2 msk. pestó ANNAMARTA
Aðferð:
- Smyrjið döðlumauki á pítsubotninn. Þar næst er mozzarellaosti stráð yfir.
- Dreifið andalæri og rauðlauk yfir í lokin.
- Bakað í 10 mín. í 200 gráðum.
- Takið út og toppað með granateplum, klettasalati og ANNAMARTA-pestói.