Vinsælu veisluplattarnir til útleigu

Veisluplattar eru ómissandi undir kræsingar - og þessa hér er …
Veisluplattar eru ómissandi undir kræsingar - og þessa hér er hægt að leigja. mbl.is/mbutik

Veisluplattar og diskar eru ómissandi í veislur og viðburði – og þessir hér eru með þeim flottari sem hægt er að leigja.

Fermingar, útskriftir, stórafmæli, brúðkaup og hverskyns veislur eru á boðstólnum þessi dægrin – og við tökum því fagnandi að mega loksins hittast án þess að hugsa um fjarlægðamörk eða grímur. En við rákumst á veislustanda eða platta sem rúma mat og aðrar krásir fyrir veisluna þína. Standarnir eru ýmist ferkantaðir eða hringlaga á þremur hæðum – og þá með misstórum breiddum á diskunum sjálfum. Því auðvelt að raða á þá eftir þörfum og óskum.

Diskarnir eru hannaðir og framleiddir af Þórunni Huldu Vigfúsdóttur sem rekur vefverslunina mbutik – og hefur framleitt hina sívinsælu stjörnumerkjaplatta undir nafninu By Multi síðan 2014, en maðurinn hennar Þórunnar sá um smíðin. Fyrir áhugasama, þá má skoða diskana nánar HÉR.

mbl.is/mbutik
mbl.is/mbutik
mbl.is/mbutik
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert