Glæsilegar nýjungar frá Georg Jensen

Ný og glæsileg pressukanna frá Georg Jensen.
Ný og glæsileg pressukanna frá Georg Jensen. mbl.is/Georg Jensen

Hversu margar kaffikönnur og karöflur megum við eiga? Það bætist alltaf í vöruúrvalið og við getum ekki látið undan með að freistast. Hér eru splúnkunýjar vörur frá danska framleiðandanum Georg Jensen og þær eru glæsilegar sem aldrei fyrr.

Fyrsta nýjungin er kristals vatnskarafla, há og mjó – og einkennir hið vinsæla rifflaða munstur í glerinu sem þekkist í vinsælu Bernadotte vörulínunni þeirra. Síðan er það pressukanna í sömu vörulínu, en kannan er með þeim glæstari til þessa. Eins og skúlptúr á borði þar sem rifflað stálið og skörpu línurnar í forminu gefa henni fágaða ásjónu. Kannan er með tvöfalda einangrun sem heldur kaffinu lengur heitu til en ella.

Splúnkuný vatnskarafla í Bernadotte vörulínunni.
Splúnkuný vatnskarafla í Bernadotte vörulínunni. mbl.is/Georg Jensen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert