Kókoskaka með meringue kremi og súkkulaðieggjum

Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Hér er á ferðinni dásamleg kaka sem smellpassar á hvaða veisluborð sem er og sé hún skreytt með súkkulaðieggjum hentar hún fullkomlega á veisluborðið í um páskana eða í fermingarveisluna. Það er engin önnur en Thelma Þorbergsdóttir sem á heiðurin að þessari dásamlegu köku sem vert er að prófa.

Kókoskaka með meringue kremi og súkkulaðieggjum

Kókoskaka

  • 300 g sykur
  • 3 stk. egg
  • 250 g hveiti
  • 3 msk. lyftiduft
  • 1⁄2 tsk. salt
  • 250 ml kókosmjólk í dós
  • 80 g kókosmjöl
  • 1 tsk. vanilludropar

Meringue krem

  • 5 stk. eggjahvítur
  • 300 g smjör við stofuhita
  • Meringue krem
  • 300 g sykur
  • 1⁄2 tsk. möndludropar

Toppur

  • kókosmjöl
  • súkkulaðiegg

Kókoskaka

  1. Hitið ofninn í 180 gráður og smyrjið tvö ca 18 cm bökunarform.
  2. Hrærið sykur og egg saman þar til blandan verður létt og ljós.
  3. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman og hrærið, bætið saman við deigið ásamt mjólkinni og vanilludropum.
  4. Bætið því næst kókos saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman, passið þó að hræra ekki of mikið því þá verður kakan seig.
  5. Hellið deiginu til jafns í formin og bakið í 20-25 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.

Meringue krem

  1. Setjið sykur og eggjahvítur í skál, t.d. glerskál eða stálskál og hrærið saman.
  2. Setjið skálina yfir pott sem er hálf fylltur af vatni sem sýður.
  3. Hrærið stanslaust þar til sykurinn hefur náð að bráðna og blandast eggjahvítunum, blandan verður hálfpartinn eins og það sé búið að bræða sykurpúða.
  4. Setjið blönduna í skál og þeytið þar til eggjahvíturnar hafa náð að kólna og eru orðnar stífar og standa.
  5. Bætið þá smjörinu smátt og smátt saman við. Hrærið vel á milli svo smjörið blandist vel saman.
  6. Endurtakið þetta þar til allt smjörið hefur blandast saman og kremið er orðið mjúkt og slétt.
  7. Bætið möndludropum saman við. Gott er að smakka kremið til og bæta við dropum ef þess þarf.

Samsetning

  1. Setjið krem á milli botnanna á kökunni og utan um hana alla.
  2. Þrýstið kókosmjöli utan um alla kökuna og setjið einnig ofan á toppinn.
  3. Skreytið með litlum súkkulaðieggjum.
  4. Setjið kökuna í kæli ef það á að geyma hana til næsta dags, en takið út um 30 mínútum áður en þið gæðið ykkur á henni.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert