Þessi dásamlega fallega og sparilega terta er sannarlega boðberi hækkandi sólar, bjartsýni og gleði. Svo bragðgóð og fersk. Hún passar fullkomlega á páskaborðið eða í fermingarveisluna.
Hún er í sjálfu sér ekki flókin í gerð en smá tíma tekur að útbúa hana en það er svo fullkomlega þess virði. Jarðarberjaskyrið og mascarpone rjómaosturinn tóna vel saman með lemon curd og ferskum jarðarberjum. Það er hægt að útbúa hana með góðum fyrirvara þar sem hún geymist vel í kæli.
Það er engin önnur en Valgerður Gréta Gröndal á GRGS sem á heiðurinn að þessari snilld.
Sparileg jarðarberjaostakaka
Botn
- 200 g Digestive heilhveitikex
- 85 g smjör, brætt
- 1 tsk. flórsykur
Fylling
- 200 g íslenskur Mascarpone frá Gott í matinn
- 2 dl rjómi frá Gott í matinn
- 250 g Ísey skyr með jarðarberjum
- 1 stk. sítróna, safi og börkur
- 100 g flórsykur
- 1 tsk. vanilludropar
- 5 stk. matarlímsblöð (4-5 stk.)
- fersk jarðarber, magn eftir smekk
Lemon curd
- 3 stk. sítrónur, safi og börkur
- 300 g sykur
- 200 g smjör
- 4 stk. stór egg
- rifinn börkur af sítrónunum
- 120 ml sítrónusafi úr sítrónunum
- 1⁄8 tsk. salt
Botn
- Byrjið á því að bræða smjörið, látið mesta hitann rjúka úr.
- Setjið kexið í matvinnsluvél og myljið smátt.
- Setjið kexið í skál ásamt bræddu smjörinu og flórsykri og blandið saman þar til blandan lítur út eins og blautur sandur.
- Setjið bökunarpappír í botninn á 20 cm smelluformi, setjið kexblönduna í formið og þjappið lauslega.
- Setjið botninn í kæli á meðan fyllingin er gerð.
Fylling
- Setjið matarlímið í bleyti í kalt vatn.
- Setjið mascarpone ostinn í skál og þeytið í smástund þar til hann er farinn að mýkjast.
- Raspið sítrónubörkinn af sítrónunni og setjið hann saman við.
- Bætið skyri og flórsykri út í og þeytið þar til blandan er samfelld og kekkjalaus. Setjið til hliðar.
- Þeytið rjómann, ekki alveg þar til hann er stífþeyttur en nánast. Blandið honum með sleikju saman við ostablönduna.
- Kreistið vatnið úr matarlíminu og setjið í lítinn pott ásamt safanum úr sítrónunni. Hitið þar til matarlímið er uppleyst og takið þá strax af hellunni.
- Takið kúfaða matskeið af ostakökublöndunni og setjið út í pottinn með matarlíminu og hrærið saman þar til blandan er samfelld og kekkjalaus. Setjið þá matarlímsblönduna út í ostakökufyllinguna. Með þessari aðferð eru minni líkur á því að matarlímið fari í kekki í blöndunni.
- Takið botninn úr kæli og hellið ostakökufyllingunni yfir botninn og sléttið úr með skeið. Setjið aftur í kæli.
- Gerið lemon curd á meðan kakan er í kæli. Best að hún sé í kæli yfir nótt eða að minnsta kosti 4 tíma.
- Þegar bera á kökuna fram, smyrjið hana þá með lemon curd og skreytið með ferskum jarðarberjum, mér finnst einnig smart að setja nokkur blóm með spari.
Lemon curd (sítrónumauk)
- Skolið sítrónurnar vel og þerrið. Raspið af þeim börkinn en passið að fara ekki niður í hvíta hlutann. Setjið sykurinn og börkinn í matvinnsluvél og vinnið saman í smástund.
- Setjið smjörið, sítrónusafa og salt út í og vinnið saman aðeins lengur. Bætið þá einu eggið út í í einu.
- Setjið vatn í pott og stál eða glerskál þar yfir. Setjið blönduna úr matvinnsluvélinni í skálina og hitið varlega upp í 75°C eða þar til sítrónusmjörið er farið að þykkna. Þetta tekur ca. 10-15 mín. Fylgist vel með og hrærið allan tímann. Passið að vatnið bullsjóði ekki því það gæti gerst hratt að blandan breytist í sítrónuommilettu og það viljum við alls ekki.
- Þegar blandan er tilbúin hellið henni í hreinar krukkur. Kælið.
- Þetta er rífleg uppskrift og dugar í 3x 200 ml krukkur.
- Geymist mjög vel í kæli og sérlega gott á enskar skonsur og vöfflur.