Spennandi viðburðir fyrir nektarsinna?

Til eru þeir sem elska að vera allsberir og ekkert að því. Hins vegar hafa félagslegar venjur torveldað þeim tilveruna töluvert og almennt kveða velsæmisreglur á að klæðast þurfi fatnaði í almenningsrýmum.

Nýtt fyrirtæki í Bretlandi, Nothing On Events, leysir þennan vanda því um er að ræða viðburðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í viðburðum fyrir fólk sem kýs að vera klæðalaust.

Það nýjasta hjá fyrirtækinu eru matar og drykkjar viðburðir þar sem fólk getur mætt allsbert á krá og notið þess að fá sér einn eða tvo kalda.

Fyrir áhugasama er hægt að skoða heimasíðu fyrirtækisins HÉR en margar spennandi ferðir eru framundan fyrir þá sem kjósa klæðalausan lífstíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert