Það er kominn tími á að hressa sig við með ferskum og sumarlegum kokteil – enda sumarið rétt handan við hornið samkvæmt dagatali, þó að veðrið segi til um annað. Og hér er uppskrift að einstaklega ferskri margarítu.
Kokteillinn sem kallar á sumarið
1 drykkur
- 3 sneiðar af gúrku
- 2 cl nýkreistur lime safi
- 4 cl tequila
- 2 cl Cointreau
- 3 cl elderflower safi (öldurblómasafi)
- Ísmolar
- Gúrkustrimlar og limesneið til skrauts
Aðferð:
- Setjið gúrkusneiðar og limesafa í hristara og maukið vel saman.
- Bætið tequila, Cointreau og elderflower safanum út í og fyllið með ísmolum.
- Hrisstið drykkinn vel, sigtið og hellið beint í glas fyllt með ísmolum.
- Skreytið með gúrkustrimlum og lime sneið.
Uppskrift: Bobedre.dk