„Börnin mín eru hörðustu gagnrýnendurnir þegar kemur að eldamennsku minni. Þessar vefjur fengu hinsvegar fullt hús stiga og eins og sonur minn sagðir þá eru þær "banging"!“ segir Berglind Guðmunds á GRGS.is um þessar geggjuðu vefjur sem vert er að prófa.
„Banging“ kjúklingavefjur með avacado og nachos
Sósa:
- 180 g sýrður rjómi
- 180 g salsa sósa
- 1 1/2 tsk taco krydd, t.d. mexikaninn frá Kryddhúsinu
Burrito:
- 4 stórar tortillur
- iceberg kál niðurskorið
- 2 tómatar, skornir í litla bita
- 200 g cheddar ostur
- 2-3 eldaðar kjúklingabringur, rifnar niður
- 1 poki ostaflögur
- 1 avacado
Leiðbeiningar
- Blandið hráefnum fyrir sósuna saman í skál.
- Setjið 1 msk af sósunni á tortillu og raðið svo káli, kjúklingi, avacado, tómötum, flögum og cheddar ost. Toppið með 1 msk af sósunni og rúllið vefjuna upp.
- Endurtakið með hinar tortillurnar og njótið vel.