Það er löngu komið á hreint að kollagen er orðið skyldufæðubótaefni hjá fólki nú til dags enda þurfum við alla þá hjálp sem við þurfum til þess að haldast í eins góðu líkamlegu ástandi og kostur er.
Hér býður Berglind Guðmunds á GRGS.is upp á svokallaðan „nice cream“ sem er mögulega sá fallegasti sem við höfum séð og ekki spillir fyrir að hann bragðast ótrúlega. Við mælum svo sannarlega með að þið prófið - og ekki spillir liturinn fyrir!
Fagurbleikur kollagen „nice cream“
Fyrir 2
- 3-4 frosnir bananar, skornir í bita
- 200 g frosið mango
- 150 g frosið rautt pitaya (dragon fruit) eða hindber
- 1 msk. kókosmjólk eða límónusafi
- 3 skeiðar Amino Marine collagen frá FEEL ICELAND
- 1 tsk. vanilludropar
- múslíblanda til skrauts
Leiðbeiningar
- Setjið öll hráefnin, að múslíblöndunni undanskilinni, í öflugan blandara.
- Saman þar til blandan er orðin mjúk og þykk. Varist að ofblanda því þá verður hún of þunn.
- Setjið í skálar og skreytið með múslíblöndunni.