Við elskum þegar afgangar úr ísskápnum geta reynst okkur nytsamlegir í heimilisþrifunum. Hér eru þrjú góð ráð þar sem þú getur nýtt þér afgangs sítrónu.
- Taktu hálfan sítrónuhelming og stráðu natron yfir „sárið“. Nuddaðu vaskinn vel með sítrónunni til að fá góðan ilm og skínandi hreinan vask.
- Taktu afgangs sítrónubita og settu í krukku ásamt tveimur bollum af ediki og láttu standa í eina viku. Helltu því næst blöndunni í brúsa og þú ert komin með fullkomið hreingerningarsprey í hendurnar.
- Settu afgangs sítrónu í pott með vatni og hitaðu að suðu. Þetta mun losa um alla vonda lykt á heimilinu.