Við elskum taco og hér er Berglind Guðmunds á GRGS.is sem toppar flest. Hún notar andalæri og bladar rauðkáli og pikkluðum rauðlauk við. Blanda sem gulltryggir gæðin!
Andataco með rauðkálssalti og pikkluðum rauðlauk
Fyrir 4-6
- 5 andalæri í dós
- sjávarsalt
Rauðkál:
- 1/4 rauðkálshaus, rifið fínt (ég notaði mandolin)
- 1/2 agúrka, kjarnhreinsuð og skorin í strimla
- 1/2 búnt kóríander, saxað
- safi úr límónu
Pikklaður rauðlaukur:
- 1 rauðlaukur
- 240 ml eplaedik
- 1 msk. sykur
- 1 tsk. salt
Sósa:
- Sýrður rjómi
- 10-12 litlar tortillur
Leiðbeiningar
- Takið andalærin úr dósinni og þerrið lítillega. Hér má salta og setja beint í ofn en ef ég hef tíma þá læt ég vel af sjávarsalti yfir lærin og geymi í kæli yfir nótt. Svo tek ég smá af saltinu frá og set inn í ofn. Bæði gott - þitt er valið. Eldið í 180°c heitum ofni í 20-25 mínútur. Gott er að láta á grill í lokin til að fitan verði stökk. Rífið kjötið niður með tveimur göfflum.
- Blandið hráefnum fyrir rauðkálssalatið saman í skál og smakkið til með límónusafa. Geymið í kæli.
- Rauðlaukurinn er skorinn í sneiðar, settur í sigti og sjóðandi vatni helt yfir. Í glerkrukku er öllu blandað saman, hrist vel og látið standa í ísskáp í allavega 30 mínútur en geymist í nokkra daga.
- Hitið tortillurnar. Setjið sýrðan rjóma, andalæri, rauðkál, pikklan rauðlauk á tortilluna. Berið fram strax.