„Þessi marinering er á eitthvað öðru leveli góð!“ segir Berglind Guðmunds á GRGS.is um þessa snilldar uppskrift. Það þýðir að þessi uppskrift veður prófuð á ansi mörgum heimilum á næstunni enda ekki hægt að láta svona uppskrift framhjá sér fara.
Fimm stjörnu grillkjúlli með kaldri cajunsósu
- 4 kjúklingabringur eða 10 kjúklingalæri
- 120 ml soyasósa
- 120 ml worcestershire sósa
- 8 msk. dijon sinnep
- 50 g púðursykur
- 3 msk. ólífuolía
- 1 tsk. svartur pipar
- 1/2 tsk. hvítlauksduft
- 1/2 tsk. salt
Cajun sósa:
- 1 dós sýrður rjómi
- 1 1/2 msk. eplaedik
- 1 msk. dijon sinnep
- 1 tsk. cajun krydd (ég hef notað mexikaninn krydd frá kryddhúsinu)
- 1/2 tsk. svartur pipar
Leiðbeiningar
- Blandið öllum hráefnum í marineringuna saman í skál og leggið kjúklinginn þar í. Látið marinerast í að minnsta kosti klukkutíma helst yfir nótt.
- Blandið öllum hráefnum fyrir sósuna saman í skál og geymið í kæli.
- Grillið kjúklinginn þar til hann er eldaður í gegn.
- Berið fram með sósunni og grilluðu grænmeti.