Við elskum eggjahræru og stökkt beikon í morgunmat – og hér færum við ykkur aðferð þar sem enginn panna er dreginn upp á borð til að klára verkið. Því við látum örbylgjuofninn duga!
Svona masterar þú eggjahræru án pönnu
- Örbylgjuofn
- Egg
- Olía
- Krydd ef óskast
- Mjólk
Aðferð:
- Byrjið á því að smyrja olíu eða smjöri á disk eða skál sem þolir að fara inn í örbylgjuofn – því það mun koma í veg fyrir að eggin festist við.
- Sláðu eggin út og kryddaðu með því sem þú vilt.
- Bættu örlítið af mjólk saman við (eða vatni) og þeyttu létt með pískara eða gaffli.
- Settu inn í örbylgjuofn í 30 sekúndur og sláðu þá létt í gegnum hræruna með gaffli til að skilja eggin að. Settu aftur inn í aðrar 30 sekúndur ef þér finnst eggin ekki vera alveg tilbúin.
- Eins má bæta við osti, heitri sósu eða öðru sem hugurinn girnist við hræruna.