Við elskum að færa glamúrinn inn í eldhúsið, og hér eru nokkrir ómissandi hlutir sem gætu verið áhugaverðir í safnið.
Pressukanna verður vart smartari en eins og þessi hér frá Bodum. Fæst í Kokku.
Íslensk hönnun! Skýjalaga diskur frá Ingu Elínu. Fæst í Epal.
Gylltur upptakari frá Normann Copenhagen. Fæst í Líf og list.
Ostahnífasett sem setur glamúrinn á borðið. Fæst í Húsgagnahöllinni.
Skaftið á gyllta tertuspaðanum frá Sagaform er fallega bogið og verður veisluborðið því öðruvísi.