Góður lax stendur alltaf fyrir sínu, enda stútfullur af mikilvægum næringarefnum. Þessi uppskrift er allt í senn, einföld, fljótleg og góð!
Það er engin önnur en Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að uppskriftinni sem ætti að slá í gegn á hverju heimili.
Lax með sítrónusósu
Fyrir fjóra
Lax:
- 800 g laxaflök
- Salt og pipar
- Ólífuolía
- Fersk steinselja
Sítrónusósa
- 1⁄2 laukur, mjög fínt saxaður
- Safi úr einni sítrónu
- 60 ml hvítvín
- 125 ml rjómi frá Gott í matinn
- 110 g smjör (við stofuhita)
- Salt eftir smekk
Annað meðlæti:
- Bakaðar kartöflur með smjöri og salti
- Ferskt salat að eigin vali. Til dæmis: klettasalat, mangó, avókadó, kasjúhnetur og Dala Feta)
- Ferskar sítrónusneiðar
Aðferð:
- Skerið laxinn í hæfilega stóra bita og raðið í eldfast mót.
- Penslið með olíu og kryddið með salti og pipar.
- Bakið við um 215°C í 10-15 mínútur (fer eftir þykkt flakanna).
- Stráið ferskri steinselju yfir laxinn þegar hann kemur úr ofninum.
- Á meðan laxinn er í ofninum er sósan útbúin.
- Setjið lauk, sítrónusafa og hvítvín saman í pott og sjóðið niður í 8-12 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna.
- Hrærið rjómanum saman við og náið upp suðu að nýju.
- Takið pottinn þá af hellunni og hrærið smjörinu varlega saman við, þar til það hefur bráðnað (lítinn hluta í einu).
- Kryddið til með salti eftir smekk og hafið sósuna í pottinum á lágum hita, þar til bera á matinn fram.