Þrifatrixið sem TikTok-arar elska!

Ljósmynd/Colourbox

Við þurfum að vita og kunna þetta allt saman, enda engin ástæða til annars en að eiga alltaf gott húsráð upp í erminni þegar þörf er á. Og þetta hér kennir okkur að þrífa eldhúsvaskinn á augabragði.

Þegar þörfin er stærst, er TikTok okkur næst! Hér sjáum við hálfa sítrónu sem hefur verið notuð í matargerð og kemur að góðum notum við annarskonar störf, eða þrif. Þú einfaldlega sprautar vel af uppþvottalögi yfir sítrónuna og nuddar henni svo á allan vaskinn - skolar og þurrkar yfir með þurrum klút. En myndbandið hér fyrir neðan talar sínu máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert