Steikarsalatið sem þú verður að smakka

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

„Samsetning hráefna í þessu salati er nokkuð sem dansar við mína bragðlauka,“ segir Helena Gunnars um þetta geggjaða salat. „Dúnmjúkt nautakjöt, grillaður maís og ferskir tómatar sem smellpassa svo einstaklega vel við bragðmikinn ostinn og gómsæta salatsósu.“

Steikarsalat með Stóra Dímon og grilluðum maís

Fyrir tvo

  • Salatblanda að eigin vali
  • kirsuberjatómatar, gjarnan gulir og rauðir
  • ferskur maís
  • 1⁄2 stk. Stóri Dímon
  • 300 g nautalund eða annar vöðvi
  • smjör
  • ólífuolía
  • salt og pipar

Salatsósa

  • 1 msk. balsamedik
  • 3 msk. ólífuolíu
  • 1 tsk. hunang
  • 2 tsk. dijon-sinnep
  • salt og pipar eftir smekk
  • 1 1⁄2 tsk. fersk steinselja, smátt söxuð

Aðferð:

  1. Byrjið á að pensla nautakjötið með ólífuolíu, kryddið vel með salti og pipar og grillið þar til það er eldað eftir ykkar smekk. Ég fer með mitt upp í 56 gráður í kjarnhita. Látið kjötið hvíla á meðan þið útbúið afganginn af salatinu.
  2. Penslið maísinn með dálitlu smjöri, salti og pipar og grillið við háan hita þar til rendur myndast á maísnum. Skerið svo maísinn utan af stönglinum.
  3. Setjið salatið saman, leggið salatblöndu í botninn á fallegri skál, raðið því næst tómötum og maís yfir. Klípið ostinn í litla bita og dreifið yfir.
  4. Skerið nautakjötið í þunnar sneiðar og leggið ofan á salatið.
  5. Hristið öll innihaldsefnin í salatsósuna saman í krukku eða þeytið saman í skál og hellið yfir salatið. Berið afganginn fram með salatinu.
Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert