Svona vill drottningin hafa samlokurnar sínar

Elísabet Englandsdrottning er mikill sælkeri.
Elísabet Englandsdrottning er mikill sælkeri. AFP

Hér deilum við með ykkur hernaðarleyndarmáli sem breska konungsfjölskyldan notar óspart á samlokur og við viljum að sjálfsögðu gera eins.

Sjónvarpskonan og fyrrum Bond stúlkan, Jenny Hanley, hefur eytt töluverðum tíma með meðlimum konungsfjölskyldunnar og sagði nýverið í viðtali frá hráefni sem fjölskyldan elskar á samlokuna sína. Til þess að útbúa slíka samloku þarftu gott brauð sem þú smyrð með rjómaosti og leggur gúrkusneiðar þar ofan á. En rúsínan í pylsuendanum er mynta! Það er myntan sem drottningin og restin af slotinu elskar á samlokurnar sínar – sem þurfa einnig að vera skornar í litla þríhyrninga.

Jenny sagði jafnframt að eftir að hafa setið úti á grasinu fyrir aftan Buckingham-höll í glampandi sól, þá rann það upp fyrir henni að hún væri að gera það gott.

Mbl.is/Getty Images/iStockphoto
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert