Hér er á ferðinni kjúklingasalat sem enginn má missa af - en það er holgerving sumarsins að mati Snorra Guðmunds sem á heiðurinn að uppskriftinni. Grillað, létt, ferskt og afskaplega bragðgott!
Kjúklingasalatið sem ærir sumarið
Fyrir tvo
- 2 kjúklingabringur
- 1 msk. Eðal kjúklingakrydd
- 250 g jarðarber
- 1 lárpera
- 50 g pekanhnetur
- 25 g graskersfræ
- 1 rauðlaukur
- 50 g hreinn fetaostur
- 130 g blandað salat, t.d. spínat, blaðsalat og klettasalat
- 1 límóna
- 2 msk. hunang
- 4 msk. ólífuolía
- 8 g fersk basilíka
Aðferð:
- Setjið kjúklingabringur í skál með smá olíu og kryddblöndu. Blandið saman og látið marinerast í amk 30 mín.
- Rífið börkinn af einni límónu (varist að taka hvíta undirlagið með) og kreistið úr henni safann. Pískið hunangi og ólífuolíu saman við.
- Saxið basilíku mjög smátt og hrærið saman við dressinguna. Smakkið dressinguna til með hunangi, olíu, límónusafa og pínulitlu salti.
- Grillið kjúklingabringurnar í 12-15 mín eða þar til þær eru hvítar í gegn og fulleldaðar. Snúið nokkrum sinnum yfir eldunartímann. Sneiðið bringurnar rétt áður en maturinn er borinn fram.
- Sneiðið jarðarber, skerið lárperu í bita, sneiðið rauðlauk, skolið og rífið salat niður og myljið fetaost.
- Setjið jarðarber, lárperu, rauðlauk, graskersfræ og pekanhnetur í stóra skál og veltið upp úr rúmlega helmingnum af dressingunni. Skiptið á milli skála, toppið með grilluðum kjúklingabringum, meiri fetaosti, hnetum og dressing.