Það geta allir verið góðir gestgjafar í veislum, en hvað er það sem fullkomnar hina góðu samverustund með vinum og fjölskyldu? Hér eru nokkrir punktar sem auðvelt er að tileinka sér, en það er tíminn sem skiptir öllu máli.
- Það tekur tíma að bjóða góðum vinum heim.
- Það tekur tíma að fara út í búð og kaupa í matinn.
- Það tekur tíma að elda.
- Það tekur tíma að leggja á borð.
- Það tekur tíma að setja blóm á borðið, og jafnvel tína þau sjálf út í garði.
- Það tekur tíma að velja tónlist fyrir samveruna.
- Það tekur tíma að sitja til borðs með þeim sem þér þykir vænt um.
- Það tekur allt tíma – en er að sama skapi, algjörlega ómetanlegt.