Hér erum við með fullkominn rétt á degi sem þessum þar sem veðrið leikur ekki við okkur. Hann kemur úr smiðju Berglindar Guðmunds á GRGS og eins og við vitum öll þá klikkar hún ekki.
Kjúklinga enchiladas með sýrðum rjóma og cheddar osti
- 1 1/2 kjúklingabringa
- 2 msk. taco krydd
- 1/4 laukur, saxaður
- 1 dós 36% sýrður rjómi frá Gott í matinn
- 1 poki cheddar ostur frá Gott í matinn
- 8 litlar tortillur
Enchilada sósa:
- 1 dós tómatar
- 60 ml vatn
- 2 msk. ólífuolía
- 2 tsk. eplaedik
- 2 tsk. chilíduft
- 2-3 hvítlauksrif
- 1 tsk. cumin
- 1/4 tsk. chipotle (eða reykt paprika)
- 1 tsk. sjávarsalt
- 1 tsk. oregano
Leiðbeiningar
- Þerrið kjúklinginn og kryddið með taco kryddi. Eldið í 180°c heitum ofni í um 30 mínútur eða þar til eldað í gegn. Takið úr ofni og rífið niður með tveimur göfflum.
- Blandið sýrðum rjóma, lauk og 2 dl af cheddar osti saman við kjúklinginn.
- Fyllið vefjurnar með blöndunni og látið í ofnfast mót.
- Látið öll hráefni fyrir sósuna í matvinnsluvél/blandara og maukið. Hellið sósu yfir tortillurnar (magn að eigin smekk).
- Látið í 180°C heitan ofn í um 30 mínútur. Setjið þá cheddar ost yfir og eldið í 10-15 mínútur til viðbótar.