Hér færum við ykkur nýjasta æðið sem er að tröllríða á TikTok þessa dagana.
Það er bæði áhugavert og skemmtilegt að fylgjast með hvernig einn samfélagsmiðill getur fleytt af stað nýjum trendum í mat og drykk. En það allra nýjasta er að drekka kaffi og appelsínudjús úr einu og sama glasinu sem má gjarnan vera stórt vínglas til að fá glamúrinn á borðið.
Espresso í bland við appelsínudjús og nóg af klökum virðist vera drykkurinn þessa dagana. En sætan í djúsnum er að mæta ramma bragðinu í espressoinu. Sumir bæta við skvettu af sódavatni til að fá drykkinn til að freyða örlítið meira sem er kannski þess virði að prófa sig áfram með. Þið megið merkja okkur á myndum á Instagram ef þið leggið í að prófa drykkinn.