Við leggjum ekki meira á ykkur, en Bang & Olufsen kynnir nýjan hátalara í samstarfi við tískurisann Balenciaga og útkoman er geggjuð.
Hér sjáum við hátalara sem lítur út eins og taska tískuframleiðandans Balenciaga, og gjörbyltir hugmyndinni um færanlegan hátalara – en nýja varan var kynnt á tískupallinum á sýningu Balenciaga í París eða ‘Haute Couture hi-fi’. Hátalarinn er öflugur og býður upp á 18 klukkustunda rafhlöðuendingu ásamt fjölpunkta tengingu. Útlitið er einnig einstakt, eða fullkomin satínáferð með litlu hólfi að aftan sem er handvafið úr ítölsku leðri.
Taskan eða hátalarinn er til vitnis er tvö stórfyrirtæki sameina krafta sína, þar sem hönnun og gæði er í fararbroddi. Í raun mætti kalla þessa nýjung sem listaverk, því hátalarinn mun sýna sig út á við sem slíkt – hvort sem taskan standi í eldhúsinu, stofunni eða fari með þér á flakkið. Þá eru hér hugsjónir og gildi sem fara aldrei úr tísku.