Mikið var um dýrðir og annað eins veisluborð hefur aldrei sést þegar Sjöfn Þórðar fjölmiðlakona og verkefnastjóri hélt upp á 50 ára afmælið sitt um helgina. Sjöfn er sjálf mikill matgæðingur og elskar að halda veislur þar sem sælkeramatur og gleðin er við völd sem svo sannarlega var í afmælisfögnuði hennar sem haldinn var með pomp og prakt.
Stórafmælið haldið í leyndardómsfullum sal, listgallerí og vinnustofu Sigurðar Sævars Magnúsarsonar myndlistarmanns, við Barónsstíg 11 a & b - sem áður hýsti veitingahúsið Argentínu steikhús. Aðkoman var hin glæsilegasta og tekið var á móti veislugestum með kampavíni frá Piper Heidsieck sem Stefán Einar Stefánsson formaður Kampavínfjélagsins flytur inn og Nowack kampavín sem vinkona Sjafnar, Arna G. Einarsdóttir flytur inn. Bæði kampavínin njóta mikillar hylli víðs vegar um heiminn og eru vínekrunar og vínhúsin í kampavínshéruðum Frakklands. Boðið var upp á fleiri ljúffenga drykki, meðal annars Jardii crabba vín sem er nýtt hér á landi og kemur frá Serbíu, og er eðal rauðvín.
Rómverskt allsnægtarborð með frönsku ívafi
Veisluborðið vakti mikla athygli gesta enda hefur annað eins veisluborð ekki sést og gaman er að geta þess að eiginmaður Sjafnar, Lárus B. Lárusson smíðaði borðið fyrir veisluna. Hér var á ferðinni ævintýralegt rómverskt allsnægtarborð með frönsku og ítölsku ívafi þar sem íslenskt hágæða hráefni var í hávegum haft. Veislugestir gátu búið til sína uppáhalds ostapinna, blinis, bruchettu úr Foccia brauði og valið allt milli himins og jarðar sem hægt er að bera fram þegar sælkerasmárétta hlaðborð er sett saman. Ávextir, ljúffengar eldpiparsultur, döðlusultur, hnetukurl og pestó frá pesto.is var á boðstólnum sem og hið vinsæla frækex og lúpínuhrökkbrauð frá Matarbúri Kaju – en það þjónaði aðalhlutverki með osta,- og kjötveislunni þar sem Sjöfn lagði áherslu á að vera með lífrænt hágæða hráefni í forgrunni sem bæði gleður auga og munn. Síðan var að sjálfsögðu boðið upp á Lemon Club samlokuna sem Sjöfn þróaði og setti saman í samstarfi við Lemon teymið. Heimagert nautatacos sló einnig í gegn ásamt fleiri sælkerasmáréttum sem skreyttu borðið.
Draumaveisluborðið varð að veruleika
Heiðurinn af þessu ævintýralega allsgnægtarborði á Svava B. Sigurjónsdóttir matgæðingur, ástríðukokkur og góð vinkona Sjafnar. En Svava sá um að verkstýra þessu dásamlega verkefni, að koma upp þessu ævintýralega sælkerahlaðborði sem sló í gegn. „Uppskriftina af nautatacosinu og allar sósurnar sem boðið var upp á bæði með tacosinu sem og blinisinu og ásamt öðrum kræsingum á Svava vinkona. Hún er þekkt fyrir sín sælkeraborð og þegar hún heldur matarveislu standa gestirnir ávallt á gati enda stórfengleg veisluborð sem hún býður upp á. Auk þess sem hún hefur svo gott auga fyrir skreytingum og er mikill fagurkeri,“ segir Sjöfn sem er vinkonu sinni afar þakklát fyrir að gera draumaveisluborðið að veruleika.
Svava sá um að koma kræsingum upp og sá um allar skreytingarnar í samráði við afmælisbarnið. Keramikið frá Rögnu Ingimundardóttur leirlistakonu vinkonu Sjafnar var í forgrunni ásamt handverks viðarbrettum frá Kristinsson og fleirum. En Sjöfn er iðin við að nýta íslensku handverkin á veisluborð sín og veit fátt skemmtilegra en að flagga fallegum hlutum. Kræsingunum var stillt upp á fallegum keramikbökkum og skálum, ásamt viðarbrettum og skálum. Keramik kertastjakarnir settu síðan punktinn yfir i-ið á hinu ævintýralega borði. Náttúran sá um að látið lífið flæða, blóm og greinar úr garðinum heima, blóm úr Blómagalleríinu við Hagamel og gerviblóm frá Confetti Sister.
Skemmtiatriðin slógu í gegn
Til að tryggja að enginn færi svangur út bauð gestgjafinn jafnframt upp á grillaða Búlluborgara í portinu sem einnig vöktu mikla lukku. Boðið var upp á tónlistarveislu þar sem Eyfi og Stebbi Hilmars fóru á kostum og þakið hreinlega lyftist - tónarnir og gleðin ómaði. Bryndís Ásmundsdóttir sáum veislustjórnina með glæsibrag og tryllti gestina með mögnuðu Tinu Turner showi.
„Ég átti hinn fullkomna afmælisdag þar sem ég fagnaði 50 árunum og 28 ára brúðkaupsafmæli okkar hjóna með vinum og vandamönnum með smá afmælisfögnuði í mínum anda, enda matgæðingur og elska að bjóða til matarveislu þar sem gleðin er í fyrirrúmi. Þar var boðið upp á ævintýralegt sælkeraborð með rómversku ívafi og skálað var í kampavíni enda stór tímamót að fagna. Tónlistarveisla og gleði ómaði langt fram á kvöld. Svo þakklát, meyr og hrærð fyrir ykkur sem gátuð fagnað með mér, það er mér ómetanlega dýrmæt gjöf og ég hefði svo sannarlega viljað hafa ykkur öll. Elsku fjölskyldan mín, eiginmaðurinn minn, börnin og tengdabörnin sáu um að gera þennan afmælisfögnuð að veruleika ásamt góðri vinkonu minni, Svövu sem átti heiðurinn á drauma veisluborðinu mínu. Svo er ég líka svo heppin að eiga góð systkini og vini sem aðstoðuðu mig við þetta allt. Yndislegt að fá að njóta með öllum sínum uppáhalds og fagna einu ári til viðbótar, það ber að þakka,“ segir Sjöfn að lokum.