Meistari Berglind Guðmunds á GRGS.is á heiðurinn af þessri uppskrift sem er algjört æði. Einn af þessum réttum sem klikka ekki og kemst fljótt á „uppáhalds“-lista fjölskyldunnar.
Kjúklingur í spicy-mangósósu
Fyrir 3-4
- 1/2 rauðlaukur, saxaður
- 2 hvítlauksrif, smátt söxuð
- 1/2 púrrulaukur, sneiddur
- 1 paprika, smátt skorin
- 2 msk. ólífuolía
- 3 dl rjómi
- 1 tsk. sambal oelek
- 2-3 msk. mango chutney
- salt og pipar
- 3-4 kjúklingabringur
- rifinn ostur
Leiðbeiningar
- Látið olíu á pönnu og steikið grænmetið í 2-3 mínútur við meðalhita eða þar til það er farið að mýkjast.
- Bætið rjóma, sambal oelek og mango chutney út á pönnuna og smakkið til með salti og pipar. Látið malla við vægan hita í 3-4 mínútur.
- Brúnið kjúklingabringurnar á báðum hliðum.
- Látið kjúklingabringurnar í ofnfast mót og hellið sósunni yfir.
- Setjið rifinn ost yfir allt og eldið í 180 °C heitum ofni í 20-25 mínútur eða þar til bringurnar eru eldaðar í gegn.
- Mér finnst gott að láta á grill í 1-2 mínútur til að brúna ostinn.
- Berið fram með hrísgrjónum eða pasta og einföldu salati.