Haldið ykkur fast því hér er á ferðinni ein girnilegasta eplakaka sem við höfum augum litið í langan tíma. Við erum að tala um eplaköku með dýrindis karamellukurli og súkkulaðirúsínum. Það er engin önnur en Linda Ben sem á heiðurinn að þessari snilld.
Eplakaka með karamellukurli og súkkulaðirúsínum
- 180 g hafrar
- 200 g hveiti
- 170 g púðursykur
- ¼ tsk. salt
- 1 tsk. matarsódi
- 170 ml bragðlaus olía
- 2 egg
- 150 g Síríus sælkerabaksturs karamellukurl
- 150 g Síríus súkkulaðirúsínur
- 3 epli
- Þeyttur rjómi eða vanilluís
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
- Blandið saman höfrum, hveiti, púðursykri, salti og matarsóda.
- Bætið út í olíu og eggjum, hrærið saman.
- Bætið út í karamellukurli og súkkulaðirúsínum, hrærið saman.
- Smyrjið eldfastmót sem er u.þ.b. 25 x 25 cm og smellið u.þ.b. 2/3 af deiginu í formið.
- Skerið eplin í sneiðar og setjið í formið, dreifið restinni af deiginu yfir og bakið í u.þ.b. 25 mín eða þar til hún er byrjuð að gyllast á litinn.
- Berið fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.