Frábær réttur þar sem hægt er að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum. Hér er rjóminn og grænmetið í aðalhlutverfi en hægt er að skipta grísakótilettunum út fyrir kjúkling ef því er að skipta. Geggjaður réttur úr smiðju Berglindar Guðmunds á GRGS.is
Grísakótilettur í rjómagrænmetisblöndu
- 2-3 pakkar grísakótilettur í suðrænni kryddblöndu
- 1-2 púrrulaukar, sneiddur
- 1/2 - 1 brokkólí, smátt skorið
- 1 paprika, skorin í teninga
- 1/2 laukur, saxaður
- handfylli spínat
- 1 kjúklingateningur
- 500 ml matreiðslurjómi
- salt og pipar
Aðferð:
- Takið kjötið úr pakkningunni og þerrið.
- Hitið 1 msk af smjöri og 1 msk. af olíu á pönnu og létt-brúnið kótiletturnar á báðum hliðum. Látið í ofnfast mót.
- Steikið grænmetið þar til það er farið að mýkjast. Hellið rjóma saman við og setjið teninginn út í. Smakkið til með salti og pipar og látið malla í nokkrar mínútur.
- Hellið rjómablöndunni yfir kótiletturnar og látið inn í 200°c heitan ofn í 15-20 mínútur.