Við erum alls ekkert að grínast með að nefna jólaskraut hér í orði - því nýjustu trendin í jólskrauti eru farin að kveða hljóm og þar eru perluskreytt kirsuber og kavíar á meðal þess sem við sjáum.
Síðustu ár hafa skrautlegar fígúrur, matur og alls kyns verkfæri verið vinsæl hengi á sígrænu jólatrén. Og það mun sannarlega halda áfram, en þó með örlítið breyttu sniði. Því nú hafa litlar perlur bæst í hópinn! Sömu skemmtilegu fígúrurnar, flamingó fuglar, kirsuber, kampavínsflöskur og karamellur – eru nú perluskreytt sem gerir jólaskrautið enn glæsilegra á tréð. Rétt eins og skrautið hafi farið í sparifötin í tilefni hátíðarinnar.