Hálfkláraður snakkpoki getur fljótt byrjað að missa sig, og þá eru góð ráð dýr – eða hvað? Það má með sniðugri aðferð loka snakkpokanum á einfaldan máta eins og TikTok hefur kennt okkur.
Ein af okkar uppáhalds samfélagsmiðlastjörnum á TikTok er hún @mama_mila_ – en hún er oftar en ekki með bestu ráðin í bókinni er kemur að þrifum og annarskonar sniðugri aðferðum. Hér sýnir hún okkur hvernig megi loka snakkpoka til að halda honum lengur ferskum með því að snúa upp á endana og bretta þá svo niður og yfir. Hljómar eflaust smá ruglingslega, og þess vegna leyfum við myndbandinu hér fyrir neðan að fylgja með.
@mama_mila_ I can’t believe how well this worked 😳 #lifehacks #homehacks ♬ Ultimate life hacks - Kelly - The Life Bath