Ebba Guðný með spennandi námskeið

Ebba Guðný er með spennandi námskeið fyrir fyrirtæki og einkaheimili.
Ebba Guðný er með spennandi námskeið fyrir fyrirtæki og einkaheimili. mbl.is/Ebba Guðný Guðmundsdóttir

Heilsukokkurinn og matreiðslubókarhöfundurinn Ebba Guðný Guðmundsdóttir er að fara af stað með spennandi námskeið sem fyrirtæki landsins mega ekki láta fram hjá sér fara. Hér einblínir hún á hvernig minnka megi matarsóun, sem er verðugt málefni sem allir ættu að tileinka sér - þá sérstaklega fyrirtæki, stór sem smá.

Það er vitundarvakning í þjóðfélaginu, sem og í heiminum öllum - hvað varðar matarsóun og umhverfisvernd. Ebba Guðný er þar framarlega í flokki þeirra sem láta sig þessi málefni varða. Hvernig megi minnka matarsóun og spara þar af leiðandi fjármuni og huga að umhverfinu í leiðinni. Hún mætir í fyrirtæki og heldur hálftíma erindi hvernig megi sporna við sóun í fyrirtækjum sem og á heimilum landsins með einföldum ráðum. 

Þau sem hafa áhuga á nánari upplýsingum eða að bóka námskeið, geta sent fyrirspurn á ebba@pureebba.com.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert