Hér er á ferðinni bragðmikill réttur sem gaman er að bjóða upp á þegar góða gesti bera að garði. Tígrisrækjur spila hér stórt hlutverk í brauði með sósu sem rífur aðeins í, en rétturinn kemur úr smiðju Hildar Rutar
Djúsí og bragðmiklar tígrisrækjulokur (fyrir tvo)
- 4 brioche pylsubrauð
- 12 tígrisrækjur
- Panko rasp
- Hveiti
- 1 egg
- Sítrónupipar
- Ólífuolía
- Avókadó
- Salat
- Blaðlaukur
Sósa
- 1 dl majónes
- 1-2 msk söxuð steinselja
- Safi úr 1/2 sítrónu
- 1 hvítlauksrif eða hvítlauksduft
- Nokkrir dropar tapasco sósa
- Salt og pipar
Aðferð:
- Pískið egg í eina skál, hellið hveiti í aðra og raspi í þriðju. Kryddið tígrisrækjurnar með sítrónupipar og smá salti og blandið þeim við hveitið þar til þær verða þaktar. Veltið þeim upp úr egginu og svo að lokum raspinu.
- Steikið rækjurnar upp úr ólífuolíu þangað til þær verða stökkar að utan og bleikar að innan.
- Rífið salatið og smátt skerið blaðlaukinn og avókadó. Hrærið saman í sósuna.
- Hitið pylsubrauðin í ofni og fyllið þau með salatinu, lauknum og avókadó, sósunni og risarækjunum.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir