Þegar hvítt eldhús hefur toppað sig, þá lítur það nokkurn vegin svona út. Við rákumst á þetta gullfallega eldhús hjá Est Living, en það er Darren Jones Interiors sem á heiðurinn að útkomunni.
Þetta eldhús býr yfir miklum sjarma – með bogadregnar línur og lista á innréttingunni sem setja sinn svip á rýmið. Innréttingin er að mestu skjannahvít, en eins eru viðarskápar sem gefa hlýja tóna. Ljósgrár marmari er á einum veggnum með innbyggðri viftu – ásamt hvítum múrsteini sem gefa þennan einstaka karakter. Meira segja vaskurinn og kraninn er hvítur og falla einstaklega vel inn í heildarútlitið.