Við höfum aldrei heyrt um kjúklingauppskrift sem býr til flugeldasýningu en við erum tilbúin að leggja mjög margt í sölurnar til að upplifa slíkt.
Hér erum við með uppskrif frá Berglindi Guðmunds á GRGS sem er eitthvað allt annað en við eigum að venjast. Hér eru austurlenskir tónar og útkoman er sögð svo svakaleg að allt annað bliknar í samanburði.
„Þessi uppskrift er fyrir 3-4 en ég mæli með að tvöfalda sósuna og bæta við kjúklingi því þið munuð vilja eiga nóg af þessum kjúklingarétti,“ segir Berglind.
Kjúklingurinn sem býr til flugeldasýningu
- 120 ml hot sauce t.d. Frank's
- 150 g púðursykur
- 2 tsk hvítlauksduft
- 1 msk sojasósa
- 3 tsk hrísgrjónaedik (eða eplaedik)
- 4 kjúklingabringur eða 6 kjúklingalæri
- salt og pipar
- 1 bolli sterkja, t.d. kartöflumjöl eða hveiti
- ólífuolía, til steikingar
- sesamfræ, ristuð
- vorlaukur, saxaður
- hrísgrjón
Leiðbeiningar
- Látið hot sauce, púðursykur, hvítlauksduft, edik og 2 msk vatn saman í pott og látið malla við vægan hita eða þar til sykurinn er bráðinn. Takið af hitanum og geymið.
- Kryddið kjúklinginn ríflega með salti og pipar á öllum hliðum og veltið honum upp úr sterkjunni. Hitið um 1 dl af olíu á pönnunni og brúnið kjúklinginn í 3-4 mínútur á báðum hliðum.
- Þegar kjúklingurinn er orðinn gylltur á lit, lækkið hitann og hellið sósunni yfir og látið kjúklinginn malla í 5-8 mínútur.
- Stráið sesamfræjum og vorlauk yfir og berið fram með hrísgrjónum.