Er þetta hið fullkomna eldhús? Það kemst mjög nálægt því ef þið spyrjið okkur – í það minnsta hvað fagurfræðina varðar.
Hér gefur að líta gullfallegt eldhús í orðsins fyllstu merkingu – þar sem innréttingin einkennist af látúni og glamúr. Hönnunin liggur í höndunum á Studio Author sem hafa gert einstaklega vel í þessu tilviki. Heilt á litið er eldhúsið beige-litt, eða sambland af brass-eyju, brass-blöndunartækjum og dökkum við. Náttúrulegur og lifandi steinninn í borðplötu og á veggnum setur sterkan svip á rýmið – þar sem línurnar í steininum flæða um. Gólfið gefur okkur síðan punktinn yfir i-ið með svart-hvítum tíglaflísum.