Oftar en ekki byrjum við daginn með nokkuð háleitar og skýrar hugmyndir um hvað við ætlum að hafa í kvöldmat. Endrum og eins fer þó ekki allt eins og við ætluðum okkur.
„Um daginn tók ég út hakk úr frystinum og planið var að gera hakk og spagettí í kvöldmat. Síðan rann dagurinn frá mér og ég hafði ekki komist í búð til að kaupa pastasósu né spagettí og var ég næstum hætt við að nota hakkið. Ég ákvað að sjá hvað væri til í kotinu og viti menn, úr varð þessi undurljúffenga grýta sem kláraðist upp til agna!“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þessa dýrindis grýtu sem við megum til með að prófa.
Kósígrýta
- 1 laukur
- 500 g nautahakk
- 100 g pastaslaufur
- 100 g fyllt ostapasta
- 5 msk. tómatsósa
- 400 ml rjómi
- 100 g pizzaostur
- 1 msk. oreganó
- salt, pipar, paprikukrydd og hvítlaukskrydd eftir smekk
- ólífuolía til steikingar
- parmesanostur yfir í lokin (má sleppa)
Aðferð:
- Sjóðið báðar tegundir af pasta á meðan þið eldið hakkið sjálft.
- Saxið laukinn mjög smátt (þá fatta krakkar ekki að það sé laukur í matnum).
- Steikið lauk og nautahakk upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk.
- Hellið tómatsósu, rjóma og pítsuosti á pönnuna og hrærið vel þar til osturinn er bráðinn og rjómakennd sósa myndast, bætið oreganó á pönnuna og frekara kryddi eftir smekk.
- Sigtið pastað og bætið saman við.
- Þeir sem vilja geta síðan rifið parmesanost yfir allt saman!
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir