Jólin verða með breyttu sniði í ár – svona ef við ætlum að vera dramatísk. Því áherslubreytingar verða á vinsælustu súkkulaðimolum heims frá Quality Street.
Sælgætisframleiðandinn hefur tilkynnt að breytingar verði á pakkningunum þeirra. Til stendur að kveðja plastumbúðirnar utan um molana sjálfa. Súkkulaðinu verður pakkað inn í endurvinnanlegan pappír í stað skrjáfplastsins sem súkkulaðinu hefur verið pakkað inn í sl. 86 ár.
Níu af ellefu molum skipta um klæðaburð en molarnir Orange Crunch og Green Triangle halda sínu útliti. Breytingarnar munu þó ekki verða á einu bretti og því mega neytendur búast við því að molarnir í ár verði ýmist í plast- eða pappírsumbúðum.