Einn vinsælasti viðburður ársins nálgast og hér koma hugmyndir á borðið sem eiga eftir að slá í gegn. Sífellt algengara er að fólk haldi upp á hrekkjavökuna hér á landi og margir sem leggja mikinn metnað í skreytingarnar, sem og snarlið – en blóðugir fingur, sykraðar kóngulær og fyllt grasker eru þar efst á lista eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.