Nýjasta ævintýri Mörthu Stewart veldur usla

Ofurtöffarinn Martha Stewart hefur aldrei haft meira að gera en nú en þessi 81 árs gamla eldhúsgyðja hefur afrekað að koma sínu eigin hvítvíni á markað, opna veitingastað og auglýsa kaffi nakin á þessu ári... og árið er ekki búið enn.

Nýjasta samstarf hennar er við Liquid Death sem framleiðir vatn á dósum. Um er að ræða sérstakt hrekkjavökukerti sem er svart og sýnir afsagaða hönd halda á kerti. Einungis er takmarkaður fjöldi í boði og þeir sem vilja tryggja sér eintak þurfa að hafa hraðar hendur ef þeir ætla að krækja sér í eitt slíkt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert