„Við elskum öll indverskan mat svo nú þarf að fara í frekari tilraunastarfsemi á þessu sviði. Mig hefur alltaf langað á námskeið í indverskri matargerð til að læra betur á öll kryddin og töfrana og það er klárlega eitthvað sem ég þarf að fara að koma að í dagskrá lífsins,“ segir Berglind Hreiðars um þessa dýrindis uppskrift.
„Hér kemur hins vegar dásamlegur kjúklingaréttur sem var tilbúinn á 20 mínútum svo það er ekki lengur afsökun fyrir því að prófa ekki að skella í indverskt!“
Indverskur kjúklingaréttur
Fyrir um 4 manns
Kjúklingaréttur
- 1 laukur
- 3 hvítlauksrif
- 2 tsk. rifið engifer
- 700 g Rose Poultry úrbeinuð kjúklingalæri
- 4 msk. Hunt‘s tómatmauk (paste)
- 1 msk. Garam Masala
- 1 tsk. paprikuduft
- 1 tsk. cumin duft
- 350 ml rjómi
- Salt og pipar
- Smjör og ólífuolía til steikingar
Aðferð:
- Skerið kjúklinginn niður og leggið til hliðar.
- Saxið laukinn smátt og steikið við vægan hita upp úr olíu og smjöri, kryddið með salti og pipar.
- Rífið engifer og hvítlauk saman við í lokin og steikið áfram stutta stund.
- Næst má kjúklingurinn fara á pönnuna og hér má bæta við smá olíu og krydda aðeins með salti og pipar.
- Næst má bæta tómatmauki og öðrum kryddum saman við og steikja áfram.
- Hellið þá rjómanum á pönnuna og leyfið að malla í um 10 mínútur á meðan þið sjóðið grjón og hitið naan brauð.
- Gott er að rífa smá kóríander yfir í lokin en það er þó ekki nauðsynlegt.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir