Ísey skyr Crème brûlée vann sérstök heiðursverðlaun á matvælasýningunni International Food Contest sem haldin var í Herning í Danmörku dagana 1.-3. nóvember.
Ísey skyr Crème brûlée hlaut einkunnina 14,16 en hæsta mögulega einkunn er 15. Í framhaldinu var skyrið tilnefnt í flokknum Besta mjólkurvaran í flokki neysluvara (International Food Contest – Konsum kategori) og sigraði í þeim flokki með glæsibrag.
Í úrskurði dómnefndar segir: „Skyrið er ferskt og örlítið súrt og Crème brûlée-bragðið í góðu jafnvægi. Ljóst er að þetta skyr er framleitt af hæfileikaríku fagfólki og býður skyrið upp á milt og gott bragð þegar þig langar í hollt og gott millimál.“
Þetta er í þriðja sinn sem íslensk vara hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun en Mjólkursamsalan vann þau árið 2017 fyrir Ísey skyr með bökuðum eplum og 2012 fyrir kókómjólk.
Gengi mjólkurvara frá MS hefur alla tíð verið gott í keppninni og var árið í ár engin undantekning. Alls hlaut fyrirtækið 22 verðlaun fyrir vörur sínar. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir meðal annars að eigendur og starfsmenn Mjólkursamsölunnar séu með eindæmum stoltir af góðum árangri á alþjóðavettvangi en ekki síður af þeim frábæra hópi fagfólks sem íslenskur mjólkuriðnaður býr yfir á öllum sviðum.
Heildarlisti yfir verðlaun MS á matvælasýningunni International Food Contest 2022 er eftirfarandi:
Besta mjólkurvaran í flokki neysluvara – Ísey skyr Crème brûlée 170 g Heiðursverðlaun í skyrflokki – Ísey skyr Crème brûlée 170 g
Yfirlit yfir öll verðlaun, dóma og niðurstöður er að finna á heimasíðu sýningarinnar, foodcontest.dk